
Við bjóðum upp á faglegar viðgerðir á leikjatölvum, þar á meðal PS5 og PS4 viðgerðir, Xbox, Nintendo og Sega viðgerðir, ásamt viðgerðum og uppfærslum á fjarstýringum.
Við bjóðum einnig upp á moddun og Modchip ísetningar fyrir leikjatölvur, þar á meðal Nintendo Switch.
Er PS5 tölvan þín eða önnur leikjatölva biluð? Við gerum við allar leikjatölvu bilanir og vélbúnaðar vandamál á faglegan hátt.

Við gerum við bilaðar rafrásarplötur (PCB's) og sérhæfum okkur í:
*Móðurborðum og skjákortum fyrir tölvur,
*Bíltölvum eins og ABS stýringum og ECU
* Litlum rafeindatækjum

Viðgerðir og uppfærslur á tölvum og fartölvum. Við leysum hugbúnaðarvandamál, spilliforritavandamál og vélbúnaðarvandamál. Við setjum upp nýja íhluti og aðstoðum við að finna bestu uppfærsluleiðirnar.

Við hönnum þrívíddarmódel í Parasolid, STEP, IGES, 3MF, STL eða OBJ.
Við bjóðum einnig upp á 3D prentþjónustu!
*Prentunarupplausn niður í 0,2 mm
*Hámarksrúmmál 256 mm² á prentað stykki.
Við getum prentað allt frá hágæða smá-módelum til bílavarahluta.
Yfir 50+ ára samanlögð reynsla og víðtæk menntun í öllu sem viðkemur tölvum og tækni
Við vinnum með þér að finna lausnina sem hentar þínum þörfum best
Við leggjum áherslu á skjótan afgreiðslutíma og skipulagt verkferli svo viðgerðum og öðrum verkefnum sé lokið eins fljótt og mögulegt er.
Við uppfyllum ströngustu kröfur viðskiptavina okkar og bjóðum samtímis samkeppnishæf verð