Er PS5 leikjatölvan þín hætt að senda myndmerki í gegnum HDMI?
Engar áhyggjur - við getum skipt HDMI-tenginu út á faglegan hátt og lagað öll önnur vandamál sem tengjast mynd-úttaki PS5-leikjatölvunnar.
kr.19,000
Algeng bilun.....
Horfumst í augu við staðreyndir. Sony gerði stór mistök við hönnun HDMI-tengisins í PS5. Annars vegar með því að velja tengi sem hefur nánast enga styrkingu aftan á tenginu sjálfu og hins vegar við framleiðslu með því að nota ófullnægjandi aðferðir við að festa gagnapinna HDMI-tengisins við móðurborðið.
Niðurstaðan er HDMI-tengi sem er einstaklega viðkvæmt og getur jafnvel bilað við langvarandi eðlilega notkun ef HDMI-snúran er tengd og aftengd reglulega.
Ef raki úr lofti kemst að viðkvæma tininu sem notað er til að lóða gagnapinna tengisins við móðurborðið, þá getur tinið einnig smám saman oxast og tærst, þar til einn eða fleiri gagnapinnar tengisins missa að lokum, jafnvel skyndilega, samband við móðurborðið.
Bæði þessi algengu vandamál geta valdið því að leikjatölvan hættir alfarið að senda myndmerki í gegnum HDMI. Afleiðingin er svartur skjár ásamt stöðugu hvítu ljósi á ljósaborða leikjatölvunnar.
HDMI-kóðara-flagan (encoder IC) og aflstýringar-flagan geta einnig verið orsök vandans, auk annarra íhluta sem geta bilað á móðurborði PS5.
Við getum lagað myndúttaksbilanir í PS5 með faglegum útskiptum á HDMI-tengi eða viðgerð á móðurborði!
Með nákvæmum verkfærum og sérþekkingu skipta tæknimenn okkar HDMI-tenginu út fyrir nýtt og endurbætt HDMI-tengi sem er sérstaklega hannað með styrkingu aftan á tenginu.
Við notum einnig tinblöndu sem hentar mun betur fyrir ytri tengi tölvunnar sem veitir aukna mótstöðu gegn oxun og raka, bæði á gagnapinnum tengisins og festingum þess við prentplötuna.
Aðferðir okkar og varahlutir tryggja sterkt og endingargott HDMI-tengi sem dregur verulega úr líkum á sambærilegum vandamálum í framtíðinni.
Við erum svo örugg með gæði vinnunnar okkar að við veitum 2 ára ábyrgð á uppsetningu, varahlutum og efni.
Við nálgumst nú 200 HDMI-tengja viðgerðir á PS5-leikjatölvum, og hingað til hefur enginn þurft að nýta sér þessa ábyrgð.
Af hverju að velja okkar þjónustu?