
Djúpþrif/Rykhreinsun Og Útskipti Á Hitaleiðandi Efni (TIM)
Þessi þjónusta inniheldur:
*APU er bæði Örgjörvi og Skjákortskjarni PS5 tölvunnar sem eru hvorutveggja á sömu BGA kísilflögunni.
*TIM er stytting á "Thermal Interface Material" nefnt "Hitaleiðandi efni" á Íslensku
Hvaða Hitaleiðandi Efni Ætti Ég Að Velja?
Kælilausn PS5 tölvunnar var hönnuð með Liquid Metal TIM í huga, en það hefur nú verið sýnt fram á að frábær hitaleiðnigeta PTM7950 er jafn góð og hitaleiðnigeta Liquid Metal.
PTM7950 efnið er þróað með iðnaðarleyndarmáls polymer PCM kerfi, sem gerir efninu kleyft að skipta um fasa milli þess að vera þurrt og formfast yfir í að vera vökvakennt og til baka aftur ítrekað, án þess að tapa hitaleiðni-getu né formi sínu.
Af því að efnið er Þynna en ekki vökvi, þá er PTM7950 ónæmt fyrir hinu svokallaða "Pump Out Effect", og viðheldur topp afköstum í allt að/lengur en áratug, og það þarfnast heldur ekki viðhalds.
Nvidia og Lenovo hafa nú notað PTM7950 í mörg ár í sínar allra dýrustu háafkasta vörulínur með ótrúlega góðri niðurstöðu.
Bæði Tækniheimur og kolleggar okkar erlendis höfum haft frábæra reynslu af því að skipta út Liquid Metal í PS5 tölvum fyrir PTM7950. PS5 tölvan viðheldur upprunalegri Varmalosunar getu sinni, og í sumum tilfellum, þá sýnir hún betri hitaleiðni afköst og hitastig á APU framyfir Liquid Metal.
Við mælum eindregið með PTM7950 fyrir PS5 tölvurnar þar sem það útrýmir öllum vandamálum sem geta komið upp með því að notast við Liquid Metal TIM.
Liquid Metal hitaleiðni lausn Sony fyrir PS5 hefur einnig verið að valda vandamálum með stórann og sístækkandi fjölda PS5 tölva sem veldur því að þær byrja að ofhitna eftir þvi sem tími líður frá upphafi notkunnar tölvunnar.
Vandamálið liggur að mestu í að PS5 tölvan er hönnuð með það í huga að hún sé látin standa upprétt (lóðrétt), sem setur APU gjörvann uppá rönd.
Þyngdaraflið tekur yfir og Liquid Metal efnið byrjar að leka niður, sem veldur "þurrblettum" á APU sílikon flögunni. Ítrekuð notkun með of háu "hot spot" hitastigi á APU vegna þurrbletta getur mögulega skemmt APU flöguna ef viðhaldi hefur verið ábótavant of lengi.
Ef PS5 tölvan þín notast við Liquid Metal, þá mælir Tækniheimur eindregið með að bæði nota og geyma PS5 tölvuna í láréttri stöðu, liggjandi á hlið.
Það mun ekki hafa neikvæð áhrif á notagildi né varmalosunar getu tölvunnar, en mun minnka líkurnar á að þurrblettir myndist á APU flögunni.
Við mælum einnig með að láta skoða Liquid Metal á APU að minnsta kosti einu sinni á ári fyrir gott viðhald.
Þurrblettir vegna Liquid Metal geta einnig myndast þó tölvan sé höfð lárétt/liggjandi, vegna hins svokallaða "Pump Out Effect"