Skilmálar

Hafa Samband

Viðskiptaskilmálar Tækniheimur.is

Tækniheimur.is áskilur sér rétt til að breyta reglum og skilmálum án fyrirvara. Öll verð á síðunni eru birt með fyrirvara um innsláttar- og kerfisvillur.

Við staðfestingu pöntunar í netverslun eða þegar stofnað er til viðskiptasambands við Tækniheimur.is samþykkir viðskiptavinur eftirfarandi viðskiptaskilmála:

 

#Greiðslumöguleikar

Við bjóðum upp á eftirfarandi greiðslumöguleika sem stendur:

– Millifærsla (Ekki í gegnum vefverslun)

– Reiðufé (Einungis við afhendingu búnaðar/vöru)

 

# Skilaréttur

14 daga skilaréttur af vörum, þó búið sé að opna umbúðir og prófa, gegn framvísun kvittunar fyrir kaupum, eða staðfestingu á móttöku sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær vara var keypt eða afhent. Viðskiptavinur ber ábyrgð á þeirri rýrnun á verðgildi vörunnar sem stafar af meðferð hennar, sem ekki telst nauðsynleg til að staðfesta eiginleika og virkni. Enn fremur þurfa umbúðir ásamt fylgihlutum og handbókum að fylgja með vöru.

Skilaréttur þessi á ekki við um hverskonar vörur sem eru settar í eða skipt um í leikjatölvum (t.d. Modkubbar, stýripinnar, PCB íhlutir, rafhlöður, skjáir ogsfrv) sem sett var í tölvu með samþykki viðskiptavinar.

Sé vöru skilað eða tilkynnt um skil innan 14 daga frá kaupum eða afhendingu, býðst viðskiptavini full endurgreiðsla eða inneignarnóta sem jafngildir upphaflegu kaupverði, en eftir það er miðað við það verð sem er í verslun við skil sé það lægra.

30 daga skilaréttur af vörum ef þær eru í óopnuðum umbúðum gegn framvísun kvittunar fyrir kaupum, eða staðfestingu á móttöku sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær vara var keypt eða afhent. Skilaréttur þessi á ekki við sérpöntunum eða útsöluvöru.

Viðskiptavinur ber beinan kostnað af því að skila vöru og ber ábyrgð á að koma vörunni til Tækniheimur.is
Tekið er á móti vöruskilum í Víkurás 1, 110 Reykjavík á uppgefnum opnunartímum verkstæðis.
Einnig er hægt að tilkynna vöruskil innan 14 daga frá móttöku búnaðar á netfangið thjonusta@taekniheimur.is
Skilaréttur gildir ekki um sérpantaðar vörur, hugbúnað sem hefur verið opnaður/virkjaður og þjónustu sem þegar hefur verið veitt.

Athugið: Viðskiptavinur ber ábyrgð á kostnaði vegna sendingar við skil á vöru.

 

#Ábyrgð á vörum

Sölureikningur vöru telst ábyrgðarskírteini og gildir ábyrgð frá kaupdegi.
Allur nýr vélbúnaður, sem Tækniheimur.is afhendir, nýtur ábyrgðar á skilgreindu þjónustutímabili. Sé ábyrgðartími ekki skilgreindur, er hann 2 ár.
Almennur ábyrgðartími á vörum er 2 ár nema annað sé sérstaklega tekið fram á kaupnótu eða í vörulýsingu viðeigandi vöru. Ábyrgð nær yfir framleiðslugalla en ekki eðlileg slit eða tjón vegna rangrar notkunar.
Rafhlöður teljast sem rekstrarvara og eru almennt í 6 – 12 mánaða ábyrgð frá framleiðenda.
Ábyrgð á öllum vörum miðast í öllum tilfellum við tækið hafi verið rétt notað og eftir leiðbeiningum framleiðenda eða sérstökum leiðbeiningum Tækniheimur.is og að búnað/tækinu hafi verið rétt viðhaldið. Ábyrgð nær ekki til skaða eða bilana sem stafa af flutningi, rangri uppsetningu, rangri meðferð eða misnotkun.

Tilkynna þarf um galla eins fljótt og auðið er, ekki má eiga við vélbúnað í tæki af aðilum sem eru óviðkomandi seljanda nema í samráði við hann.
Tækniheimur.is áskilur sér rétt til þess að sannreyna galla.

Athugið: Komi til ábyrgðarviðgerðar tekur Tækniheimur.is ekki ábyrgð á gögnum eða neinskonar hugbúnaði sem hefur verið settur upp á tæki eftir kaup.

 

# Viðgerðir á tölvubúnaði

Á Íslandi annast Verkstæði Tækniheimur.is viðgerðþjónustu og ábyrgðarmál á öllum búnaði sem seldur og þjónustaður er af Tækniheimur.is

Verkstæði Tækniheimur.is er í Víkurás 1, 110 Reykjavík. Sími 883-2031. Netfang thjonusta@taekniheimur.is

Komi í ljós við skoðun hjá Tækniheimur.is eða viðurkenndum þjónustuaðila að búnaður sé ekki haldinn galla, skal viðskiptavinur greiða skoðunargjald, 8500 kr hjá Tækniheimur.is eða í samræmi við gildandi verðskrá viðkomandi þjónustuaðila, auk flutningskostnaðar ef við á.

 


# Ábyrgð vegna viðgerða á búnað sem er ekki seldur hjá Tækniheimur.is, sem viðskiptavinur kemur með á verkstæði Tækniheimur.is

Tekið er á móti búnaði til viðerðar á Verkstæði Tækniheimur.is sem er í Víkurás 1, 110 Reykjavík.

1 árs ábyrgð er tekin á vinnu og efni sem notað er vegna viðgerðarþjónustu á slíkum búnað.
Ábyrgð á allri viðgerðarþjónustu miðast í öllum tilfellum við tækið hafi verið rétt notað og eftir leiðbeiningum framleiðenda eða sérstökum leiðbeiningum Tækniheimur.is og að búnað/tækinu hafi verið rétt viðhaldið.

Ábyrgð á viðgerðarþjónustu nær ekki til skaða eða bilana sem stafa af flutningi, rangri uppsetningu, rangri meðferð eða misnotkun.

Tækniheimur.is bætir ekki tjón sem verður á búnaði sem Tækniheimur.is hefur þjónustað eða viðgert eftir að búnaður er afhentur viðskiptavin.

Ef í ljós kemur, að mati tæknimanna Tækniheimur.is, að tjón á búnaði sem Tækniheimur hefur viðgert í umboði viðskiptavinar, megi rekja beint til mistaka við vinnu Tækniheimur.is á þeim búnað, vegna galla á efnum þeim sem notuð voru við viðgerð á búnaðnum eða vegna galla á þeim íhlutum sem settir voru í búnaðinn, þá bætir Tækniheimur.is tjónið sem varð til vegna viðgerðar á Verkstæði Tækniheimur.is með því að gera við búnaðinn að nýju endurgjaldslaust.

Ef viðgerð skilar ekki árangri og tjón á búnaði má rekja til vinnu Tækniheimur.is á búnaðinum, þá bætir Tækniheimur.is búnaðinn upp að sama marki og tækjatrygging Tryggingafélagsins Vörður með þeim reglum sem hjá þeim gilda um ábyrgðartryggingu raftækja.

Ef í ljós kemur að ekki megi rekja tjón til vinnu Tækniheimur.is á búnaðnum, skal viðskiptavinur greiða skoðunargjald. 8500 kr hjá Tækniheimur.is

Ábyrgð á vinnu nær ekki til tjóns sem verður til vegna eðlilegs slits á búnaði vegna notkunar.

 

# Persónuvernd

Tækniheimur.is meðhöndlar persónuupplýsingar í samræmi við gildandi lög um persónuvernd. Við söfnum aðeins upplýsingum sem nauðsynlegar eru fyrir viðskipti okkar við þig.

Dæmi um upplýsingar sem við söfnum:
Nafn
Kennitala
Netfang
Heimilisfang
Símanúmer
Greiðsluupplýsingar
Þinn aðgangur

Sem skráður notandi í Netverslun Tækniheimur.is berð þú ábyrgð á trúnaði um notendaheiti, lykilorð og aðgang að þeim tölvum sem þú kannt að nota til aðgangs á vefinn. Við skráningu samþykkir þú að bera ábyrgð á öllum notkunartilvikum varðandi „Síðuna mína“(“My Account”) og lykilorð. Tækniheimur.is áskilur sér einhliða rétt til að hafna þjónustu, loka aðgangi, fjarlægja eða breyta innihaldi vefsins eða stöðva pantanir ef þurfa þykir af öryggis- eða öðrum ástæðum.

Sjá nánar í persónuverndarstefnu okkar hérna


# Vafrakökur

Við notum vafrakökur (cookies) til að bæta upplifun notenda á vefsíðu okkar. Með notkun síðunnar samþykkir þú notkun á vafrakökum í samræmi við skilmála okkar.

Við staðfestingu pöntunar í netverslun Tækniheimur.is skuldbinda viðskiptavinir sig til þess að samþykkja skilmála Tækniheimur.is

Athugið: Öll verð eru birt með fyrirvara um prentvillur, verðbreytingar og birgðarstöðu. Verð geta breyst án fyrirvara.

 
# Sendingar og afhending

Við bjóðum eftirfarandi afhendingarmöguleika:

– Afhenda búnað á verkstæði Tækniheimur.is

- Póstsendingar

Athugið:

Sendingar fara fram með þeim flutningsaðilum sem Tækniheimur.is er í samstarfi við að hverju sinni.
Kostnaður póstsendinga er annaðhvort innheimtur við afhendingu á vöru með póstkröfu eða með millifærslu á bankareikning Tækniheimur.is
 

#Lög og varnaforðarákvæði

Samningssamband Tækniheimur.is við viðskiptamenn sína fellur undir íslensk lög. Komi til ágreinings sem ekki tekst að leysa getur viðskiptavinur leitað til Kærunefnd vöru – og þjónustukaupa, Borgartúni 21, 105 Reykjavík https://kvth.is. Einnig getur ágreiningur verið rekinn fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur – Austurstræti 19, 101 Reykjavík. Ef einhver ákvæði skilmála þessara eða samnings aðila eru í andstöðu við ófrávíkjanleg lög og reglur sem um þá gilda eða ef slík ákvæði eru dæmd ógild af dómstóli sem hefur lögsögu yfir samningsaðilum, skulu slík samningsákvæði umorðuð á þann veg að sem minnst röskun verði á upphaflegum tilgangi samningsaðilanna innan ramma viðkomandi laga og dómsúrlausna, og skulu ákvæði skilmálanna og/eða samningsaðila að öðru leyti halda fullu gildi.

 
# Hafðu samband

Hafir þú spurningar varðandi skilmála okkar, vinsamlegast hafðu samband í netfangið info@taekniheimur.is

 

Umsagnir viðskiptavina

„Meðmæli frá viðskiptavini sem naut góðs af vöru þinni eða þjónustu. Meðmæli geta verið mjög áhrifarík leið til að byggja upp trúverðugleika og auka orðspor fyrirtækisins.“
Nafn viðskiptavinar
„Meðmæli frá viðskiptavini sem naut góðs af vöru þinni eða þjónustu. Meðmæli geta verið mjög áhrifarík leið til að byggja upp trúverðugleika og auka orðspor fyrirtækisins.“
Nafn viðskiptavinar
„Meðmæli frá viðskiptavini sem naut góðs af vöru þinni eða þjónustu. Meðmæli geta verið mjög áhrifarík leið til að byggja upp trúverðugleika og auka orðspor fyrirtækisins.“
Nafn viðskiptavinar

Innskráning á reikninginn þinn