Er PS5 leikjatölvan þín hætt að senda myndmerki í gegnum HDMI?
Engar áhyggjur - við getum skipt HDMI-tenginu út fyrir sterkbyggðara tengi og lagað öll önnur vandamál sem tengjast mynd-úttaki Playstation 5.
kr.19,000
Algeng bilun.....
Því miður gerði Sony stór mistök við hönnun HDMI-tengisins í PS5. Annars vegar með því að velja tengi sem hefur nánast engann styrk að tenginu aftanverðu og hins vegar við framleiðslu með því að nota of lélegt Tin til að festa gagnapinna HDMI-tengisins við móðurborðið.
Niðurstaðan er HDMI-tengi sem er einstaklega viðkvæmt og getur jafnvel bilað við langvarandi eðlilega notkun ef t.d. HDMI-snúran er tengd og aftengd reglulega.
Ef raki, t.d. hár loftraki, finnur leið að tininu sem notað var til að lóða gagnapinna HDMI tengisins við móðurborðið, getur tinið einnig smám saman oxast/tærst og þannig rofnað lóðningin. Þar geta einn eða fleiri gagnapinnar tengisins misst samband við móðurborðið.
Bæði þessi algengu vandamál geta valdið því að leikjatölvan hættir alfarið að senda myndmerki í gegnum HDMI. Afleiðingin er svartur skjár ásamt stöðugu hvítu ljósi á ljósaborða leikjatölvunnar.
HDMI-kóðara-flagan (encoder IC) og aflstýringar-flagan geta einnig verið orsök vandans, auk annarra íhluta sem geta bilað á móðurborði PS5.
Við getum lagað myndúttaksbilanir í PS5 með vönduðum vinnubrögðum og efnisvali, þarsem við skiptum út HDMI-tenginu fyrir betra tengi eða gerum við bilun á móðurborði tölvunnar ef með þarf.
Með nákvæmni og sérþekkingu skipta tæknimenn okkar HDMI-tenginu út fyrir nýtt og endurbætt HDMI-tengi.
HDMI tengin sem við notumst við eru sérstaklega hönnað með málm styrkingu á bakhlið tengisins.
Það stórminnkar líkurnar á að gagnapinnar tengis rofni frá móðurborðinu við ísetningu eða tog á HDMI kaplinum sem tengdur er við tölvuna.
Við notum einnig tinblöndu sem hentar mun betur fyrir ytri tengi tölvunnar, þar sem hún veitir aukna mótstöðu gegn oxun og raka og þolir meira átak, bæði á gagnapinnum tengisins og festingum þess við prentplötuna.
Aðferðir okkar og efnisval tryggja sterkt og endingargott HDMI-tengi sem dregur verulega úr líkum á sambærilegum vandamálum í framtíðinni.
Við erum svo örugg með gæði vinnunnar okkar að við veitum 2 ára ábyrgð á uppsetningu, varahlutum og efni.
Við nálgumst nú á annað hundrað HDMI-tengja viðgerðir á PS5-leikjatölvum og hefur engin af þeim tölvum komið til baka vegna vandamála með HDMI tengið.
Af hverju að velja okkar þjónustu?